


Mjög góð og vekur alltaf lukku og er einföld að allri gerð.
50 g ger
1 dl mjólk
300 g hveiti
150 g smjörlíki
1 egg
1 msk strásykur
¼ tsk salt
½ tsk kardimommuduft
hveiti til hnoða upp í
Fylling
100 gr marsipan (möndludeig)
1 eggjahvíta
75 gr heslihnetuflögur
Gerið leyst upp í volgri mjólkinni. Þurrefnum blandað saman í skál og smjörlíki, gervökva og eggi bætt út í og hnoðað vel saman. Gott er að vinna verkið í hrærivél.
Breytt yfir deigið og það látið hefast í ca 30 mínútur.
Það sem fer í fyllinguna er hrært saman og henni smurt á langsum eftir miðjunni.
Báðar hliðar brotnar að miðju og síðan mótuð kringla.
Lögð á bökunarplötu sem klædd er bökunarpappír.
Látin hefast í 15 mínútur.
Pensluð með samanhrærðu eggi, perlusykri og og söxuðum hnetum dreift yfir.
Kringlan bökuð við 225° h ita í 15-20 mínútur.
Það má líka rífa epli yfir marsipanfyllinguna og bæta jafnvel rúsínum með.