


300 kínakál
80 gr sellerístönglar
1 appelsína, stór
1 epli, rautt
Salatasósa
4 msk olía
2 msk sítrónusafi
2 tsk hunang
4 msk trönuberjasaft
ca 10 valhnetur
svartur pipar
Kínakálið skorið í strimla. Selleríið skorið í þunnar sneiðar.
Appelsína flysjuð og tekin sundur í báta, steinar fjarlægðir og þeir skornir í bita.
Eplið þvegið vel og skorið í bita og sítrónusafa dreypt yfir þá.
Öllu blandað saman í skál.
All sem fer í sósuna sett í skál og þeytt vel saman með pískara, hellt yfir grænmetið og smátt söxuðum valhnetukjörnum dreift yfir.