


4 sætar kartöflur (á stærð við bökunarkartöflu)
smjör
salt
100 gr cheddar ostur, rifinn
sýrður rjómi
graslaukur eða vorlaukur
gróft salt
Kartöflurnar eru þvegnar og skornar í tvennt og smávegis af smjöri ásamt ögn af salti sett á hvern helming.
Bakaðar í forhituðum ofni við 180° hita í ca 30 mínútur eða þangað til þær eru meyrar.
Ofan á þær er settur ostur, sýrður rjómi (hrært aðeins upp í honum áður), smátt saxaður laukur og gróft salt.
Borið fram strax.