Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Bakstur kökur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Berjakaka


Lýsing

Sænsk sumarleg berjakaka sem á vel við á kaffiiborði eða sem eftirréttur.

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur

2 egg
2 dl strásykur
2 dl hveiti

2-3 dl ber t.d. bláber, hindber, rifsber, stikkilsber eða það sem er ykkur lystir. Ágætt að blanda saman t.d. tveimur teg.
100 g kalt smjör
perlusykur
vanillusykur 

Leiðbeiningar

Egg og sykur þeytt vel og því næst er hveitinu hrært lauslega saman við.
Deigið sett í form, t.d. bökuform, sléttað vel og berjunum stráð yfir.
Þá er perlu- og vanillusykri sáldrað yfir og að síðustu er svo kalt smjörið (gott að setja því í frysti smástund áður), skorið með ostaskera og raðað yfir berjablönduna.
Bakað við 200° hita í 20-25 mínútur.

Borin fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.

Gott að vita:
Nota má fersk eða frosin ber ofan á kökuna og jafnvel góða berjasultu að hluta til með, ef vill. Þá er sultan sett  með teskeið á milli berjanna.
Perlusykrinum má sleppa.
Best er að baka kökuna í bökuformi og bera hana borð í því.