


Er gott með villibráð eða sem sósa með t.d. ís. Auðvelt er að margfalda hana.
frosin skógarberjablanda 100 g
flórsykur 50 g
1/2 dl vatn
Þegar berin hafa þiðnað er safanum hellt af þeim og hann settur í lítinn pott ásamt vatni og flórsykri. Látið sjóða niður þar til sósan fer að þykkna. þá er sósan kæld og berjunum hrært varlega saman við.