


Súpur eru góður kostur hvort heldur sem forréttur eða aðalréttur.
Sjá fleiri uppskriftir undir Súpur.
½ kg blaðlaukur (ekki efsti hlutinn)
1 msk olífuolía
6 dl kjúlingasoð af teningi
2 hvítlauksgeirar
3 stilkar sellerí
1 msk hvítvínsedik
tímjan, steinselja, salt og pipar
fersk steinselja smátt skorin
Blaðlaukurinn er skorin langsum, skolaður vel og vandlega og síðan skorin í litla strimla.
Olían hituð á pönnu og laukurinn mýktur þar í ca 5 mín.
Kjúklingasoðinu bætt útí ásamt kryddi og hvítlauk.
Látið malla við vægan hita í 20 mín. Bragðbætt með edikinu, salti og pipar og ferski persilunni stráð yfir þegar súpan er borin fram.
Gott ristað brauð, smjör og ostur.