Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sláturgerð Blóðmör
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Blóðmör I


Lýsing

Þetta er hefðbundin uppskrift af blóðmör.

Hráefni

í stuttu máli
Sláturgerð

2 l blóð
4 dl vatn
1 kg mör eða eftir smekk
200 g haframjöl
200 g heilhveiti
1,6 kg rúgmjöl eða sem þarf til að gera blönduna mátulega stífa
2 -3 msk gróft salt

Leiðbeiningar

Aðferð:
Blóði, vatni og salti er blandað saman í stórt ílát, hrært vel í og mjölinu blandað saman við. Hræran á að vera eins og vel þykkur vellingur.
Mörinn brytjaður í hæfilega bita og eitlar skornir burt. Eins kemur vel út að hakka hann. Best er að setja mörinn saman við um leið og sett er í keppina, annars vill hann verða dökkur, því hann drekkur auðveldlega í sig blóð.
Keppirnir eru settir í sjóðandi saltvatn og soðnir í 2-2 ½ klst. Stungið í þá þegar þeir byrja að bólgna til að hleypa út lofti, eins þarf að snúa þeim 2-3 svar á meðan á suðutímanum stendur.
Hægt að frysta bæði ósoðið og soðið.
Frystir keppir eru settir í kalt vatn þegar þeir eru soðnir og óhætt að bæta ca 30 mín. við suðutímann.

Í dag eru nánast eingöngu fáanlegar gervivambir (unnar úr hleypiefni) og fylgja 4 keppir með hverju slátri. Þá þarf ekki annað en að sauma fyrir. Mikill tímasparnaður er fólgin í því.
Hægt að kaupa aukakeppi í stórmörkuðum. 
Gæta skal vel að því að fylla keppina ekki alveg, ágætt viðmið er 400 gr í kepp í gervivambir, en til hálfs í venjulega vambakeppi.

Ath. Ekki er gott að minnka mikið hluta mörs í hrærunni, þá verður blóðmörinn harður og missir bragð.  

Krydda má blóðmör með t.d. kanel, allrahanda eða múskati. Þá er hæfilegt að nota ½ tsk kanill, ½ tsk allrahanda og ¼ tsk múskat pr. kepp.
Rúsínur er líka mjög gott að setja í blóðmör á móti mör.
Fjallagrös voru einatt notuð út í blóðmör og eykur það tvímælalaust hollustu hans.

Fjallagrösin eru þá söxuð og sett út í um leið og mjölið.

Meðlæti með nýsoðnum blóðmör eru soðnar gulrófur, gjarnar í stöppu og soðnar kartöflur. 
Einnig má steikja soðin blóðmör á pönnu og ekki verra að strá sykri eða hrásykri yfir.
Gott að bera fram soðin epli eða eplamús með eða stöppu úr sætum kartöflum með.