


2000 g blóð
1000 g vatn, kalt
1400 g rúgmjöl
150 g haframjöl, fínmalað
50 g gróft salt
150 g hveiti
1250 g mör
Byrjað er á því að brytja mörinn.
Það er vinnusparandi að kaupa tilbúin brytjaðan mör, fylgir oft þannig með í kassa.
Blóðið og vatnið síað saman og saltið hrært saman við.
Rúgmjölið, haframjölið og hveitið látið í og hrært vel.
Ath. hræran er fremur þunn.
Brytjaður mörinn hrærður saman við blóðið. Hræran sett í þar til gerða vambakeppi. Það má ekki láta nema milli hálfs og fulls í keppina.
Saumað fyrir og soðið í saltvatni í 2-2 1/2 klst.
Snúa við með 1/2 tíma fresti. Dásamlegt, heitt með nýjum rófum og kartöflum.
Andrési Húgó Sigurðssyni
Hveragerði