Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Bakstur bollur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Bollur


Lýsing

Fátt smakkast betur en nýbakaðar ilmandi bollur...

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur
Fjldi
24

2 dl nýmjólk
75 g smjör
1 pk þurrger eða 50 gr ferskt ger
2 msk súrmjóllk
1 egg
50 g strásykur
500 g hveiti
1/2 tsk salt

Ennfremur:

1 tsk kardimommuduft, kúrennur eða smátt saxað dökkt súkkulaði

Egg og mjólk til að pensla bollurnar með.

Leiðbeiningar

Mjólkin hituð aðeins og gerinu bætt saman við. Smjörið brætt og bætt í.
Út í þetta fer svo súrmjólk og egg.
Þurrefnum blandað saman (ásamt kryddi ef það er notað). Hrært og hnoðað í vél þangað til deigið er slétt og mjúkt. Látnar hefast í 45 mínútur.
Deigið s
legið niður og úr því mótaðar bollur og lagðar á bökunarplötu með bökunarpappír. Bollurnar látnar hefa sig í 30 mínútur. Penslaðar með mjólkur- eggjablöndu og bakaðar í forhituðum ofni við 180° hita í 10-12.