Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Bakstur brauð
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Brauð með vínsteinslyftidufti


Lýsing

Vínsteinslyftiduft (potassium hydrogen tartrate) eða Cream of tartar er hvorki blandað hveiti né álefnum. Það vinnur á sama hátt og lyftiduft. En þarf að nota aðeins meira af því en hefðbundnu lyftidufti.

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur

3 dl speltmjöl
3 dl haframjöl
1 kúfuð msk kúmen
1 tsk Maldon salt
2 dl sólblómafræ + þurrkaðir ávextir (t.d. smátt brytjaðar apríkósur og/eða döðlur)
4 tsk vínsteinslyftiduft
1 msk hrásykur
4 dl létt Ab-mjólk

Leiðbeiningar

Þurrefnum blandað saman í skál. Ab-mjólkin sett út í og hrært vel saman.
Ef deigið er of þykkt má bleyta í því með smá af vatni.
Sett í vel smurt brauðform og bakað í 40- 50 mín við 190° hita. Gott er að vefja rakt viskustykki utan um brauðið meðan það kólnar.