Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Brauðréttir heitir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Brauðréttur í ofni


Lýsing

Brauðréttir eru vel þegnir á kaffiborð.

Hráefni

í stuttu máli
Brauðréttir

1 franskbrauð án skorpu
1 Camembert ostur
1 Stóri Dímon ostur
1 lítil dós piparsmurostur
2 ½ dl rjómi
spergilskál, 1 lítill hnaus, ferskur í bitum
6 stórir sveppir, ferskir
200 g skinka
smjör

Leiðbeiningar

Brauðið er rifið niður í eldfast mót.
Ostar og rjómi bræddir í potti við vægan hita og hrært vel í á meðan og síðan hellt yfir brauðið. Sveppir steiktir í smjörinu á pönnu og settir yfir ost og brauð ásamt smátt skorinni skinkunni.
Spergilskálinu raðað yfir að síðustu.
Bakað í 30-40 mín við 180° hita.
Berist fram með rifs-eða bláberjahlaupi.