Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Súpur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Brauðsúpa


Lýsing

Upplagt að nota brauðafganga sem til falla á heimilinu í hana.

Hráefni

í stuttu máli
Súpur
Skammtar
4-5
200 gr rúgbrauð og aðrir brauðafgangar
ca 1 l vatn (bæði til að legga í brauðið í bleyti í elda brauðið í)
2 - 3 msk púðursykur
2 msk rúsínur eða kúrennur
½ sítróna, safi og þunnar sneiðar
2-3 dl maltöl
1 kanilstöng eða kanilduft á hnífsoddi
örl. salt

Leiðbeiningar

Brauðið er lagt í bleyti, þannig að brauðið blotni vel upp, gjarnan yfir nótt og geymt í ísskáp.
Sett í pott, vatni bætt við og soðið við vægan hita þangað til brauðið leysist vel upp, (ágætt að stappa með kartöflustappara) og súpan/grauturinn verður jafn og kekkjalaus.
Rúsínur og kanilstöng settar út í og soðið áfram og þynnt með maltölinu.
Sykur og sítrónusafi ásamt sítrónusneiðum bætt í. Smakkað til með meiri sykri ef vill og örlitlu salti.
Þynnt með meira af maltöli eftir smekk.

Borin fram með þeyttum rjóma.