


Einkar jólalegar og góðar kryddaðar smákökur.
140 g sýróp
200 g púðursykur, dökkur
200 g smjör
400 g hveiti
1 1/2 tsk hjartarsalt
1 1/2 tsk kanill
1 tsk kardimommuduft
1/2 tsk negulduft
1/2 tsk engiferduft
1 tsk rifin sítrónubörkur
2 msk kandís, malaður
50 g möndlur, afhýddar
Sýróp og og púðursykur er hitað í potti, má samt ekki sjóða. Smjörið byrjað og hrært saman við þangað til það er bráðið. Hellt í hrærivélaskál og hveiti og kryddi sládrað út í og hnoðað. Að síðustu er smátt söxuðum möndlunum, sítrónuberki og kandís bætt saman við.
Sett á borð og hnoðað þangað til deigið er sprungulítið.
Úr því eru svo mótaðar 3 ferkantaðar lengjur, ca 3 cm í þvermál. Pakkaðar inn í plastfilmu og geymdar í kæliskáp í lágmark 3-4 klst.
Þá eru þær skornar í þunnar sneiðar með beittum hníf. Ágætt að hafa þær 2-3 millimetrar þykkar.
Kökurnar lagðar á ofnplötur klæddar bökunarpappír.
Ofninn forhitaður í 175° og kökurnar bakaðar í ca 8 mínútur. Þarf að gæta að því að þær verði ekki of dökkar.