Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Jólauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Brún lagterta


Lýsing

Sem mörgum finnst ómissandi um jólin.

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur
Jólauppskriftir
500 gr hveiti
350 gr strásykur
250 gr smjörlíki
2 egg
5 msk kakó
2 tsk negull
2 tsk kanill
2 tsk sódaduft
2 1/2 dl mjólk

Smjörkrem
250 gr smjörlíki, mjúkt
1 kg flórsykur
1/2 bolli kalt kaffi (sterkt)
eða soðið heitt vatn þangað til æskilegri þykkt er náð
1-2 tsk vanillusykur
nokkur saltkorn

Leiðbeiningar

Smjörlíki og sykur þeytt vel saman, eggin hrærð saman við.
Blandið þurrefnunum saman við og vætt í með mjólkinni.
Sett á vel smurðar bökunarplötu með sleikju og sléttað vel. Deigið dugar á 2-3 plötur e. stærð.
Bakað við 200° ca. 15 mín
Einnig má setja deigið í form sem ætluð eru fyrir þunna botna.
Botnarnir látnir kólna og settir saman með smjörkreminu á milli.


Kremið
Smjörlíkið þeytt og flórsykrinum hrært saman við smátt og smátt. Vanillusykri og salti bætt út í og vökvi hrærður saman við þangað til kremið er hæfilega þykkt.