


Það má að sjálfsögðu nota aðra þurrkaða ávexti í stað þeirra sem hér eru gefnir upp.
250 g mjúkt smjör
3 dl strásykur
6 egg
5 1/2 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1 1/2 tsk vanillusykur
200 g kúrennur
200 g ljósar rúsínur
100 g sultuð kirsuber (láta leka vel af þeim)
50 g möndlur, saxaðar
50 gr heslihnetur, saxaðar
örl salt
3 msk dökkt romm
Ofan á kökuna ef vill
100 g heilar flysjaðar möndlur hlutaðar í tvennt.
2 msk strásykur
5 msk vatn
Smjör og sykur hrært ljóst og létt, romminu bætt út í og síðan er eggjunum hrært út í einu og einu í senn. Ef hræran skilur sig er ágætt að setja eins og eina msk af hveitinu saman við.
Hveitið sigtað og vanillusykri, salti, lyftidufti, ávöxtum og hnetum blandað í.
Þessu er hrært út í eggjahræruna á hægum hraða og hrært þangað til deigið er jafnt.
Sett í lausbotna hringform (18-20 cm) og sléttað vel. Ef notaðar eru möndlur ofan á kökuna er þeim raðað ofan á kökuna og vatn og sykur soðið í saman potti þangað til þykknar og síðan penslað yfir kökuna.
Bökuð við 180° í 1 klst eða ríflega það.
Ath.
Þessi kaka geymist mjög vel.