Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Jólauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Ísterta


Lýsing

Einstaklega góð og hátíðleg ísterta sem hægt er að gera með góðum fyrirvara.

Hráefni

í stuttu máli
Eftirréttir
Jólauppskriftir
Skammtar
8-12

Botnar:
4 eggjahvítur
120 gr strásykur
1/2 dl flórsykur
100 gr heslihnetukjarnar, malaðar

Fylling:
150 gr suðusúkklaði
1 1/2 dl vatn
90 gr strásykur
5 eggjarauður
2 msk gott kakóduft
100 gr valhnetukjarnar
1/2 líter rjómi

Til skrauts:
1/4 l rjómi
og t.d. súkkulaðihjúpuð jarðarber

Leiðbeiningar

Byrjað er að gera botnana, jafnvel deginum áður.
Eggjuhvíturnar eru stíþeyttar og strásykrinum bætt út í í litlum skömmtum og þeytt vel á milli.
Flórsykrinum bætt í þegar eggjahvítumassinn er alveg stífur og að síðustu er möluðum heslihnetukjörnum hrært saman við.
Teiknið tvo hringi á bökunarpappír (24-26 í þvemál).
Deigið sett ofan á og bakað við 125° í 40-45 mínútur.
Teknir varlega af pappírnum og kældir á bökunargrind.

Fylling:
Rjóminn stífþeyttur og geymdur í kæliskáp.
Suðusúkkulaðið brætt í vatnsbaði.
Eggjarauður hrærðar saman í hrærivélaskál.
Vatni og strásykri blandað saman í pott og hitað suðu og hrært vel í á meðan. Látið sjóða í 2 mínútur.
Sykurleginum hellt í mjórri bunu út i eggjarauðurnar og þeytt vel þangað til blandan kólnar og þykknar.

Bræddu súkkulaðinu blandað vel saman við og kakói og valhnetukjörnum bætt út í.
Þeyttum rjómanum bætt út í og hrært í eggjakremið.

Nú er annar botninn settur í botn á smelluformi og eggja/súkkulaðikremið hellt yfir og að síðustu botn númer 2, þrýst léttilega á hann og álpappír breiddur yfir og lokað vel í kantana.
Sett í frysti í a.m.k. 5 klst. Þá er tertan tekin út hringurinn á forminum tekinn af og skreytt. Þeyttum rjóma smurt yfir alla tertuna og búnir til toppar ofan á hana. Einnig má setja súkkkulaði hjúpuð jarðarber eða önnur ber á til skrauts.

Uppskrift: Edda Halldórsdóttir