Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Brauðréttir heitir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Ítalskættaður brauðréttur


Lýsing

Mjög góður á kaffihlaðborð eða sem léttur réttur.

Hráefni

í stuttu máli
Brauðréttir

6-8 brauðsneiðar
4 sellerístilkar
1 laukur, lítill
1 hvítlauksrif ef vill
olía

1 tsk basilika
½ tsk oregano
½ tsk timjan

ca 10 pepperónísneiðar
10-12 ólífur, steinlausar, svartar

2 dl Kotasæla
3 msk sýrður rjómi
2 eggjarauður
2 eggjahvítur

Leiðbeiningar

Skorpan skorin af brauðsneiðunum og þær tættar í sundur og settar á botn á smurðu eldföstu móti. Kryddinu blandað saman og stráð yfir.
Selleríið skorið í bita og laukur og hvítlaukur ef hann er notaður, fínsaxaður og þetta mýkt saman í heitri olíu á pönnu.
Hellt yfir brauðið.
Því næst er pepperónísneiðum ásamt ólífum raðað þar ofan á.
Kotasælu, eggjarauðum og sýrðum rjóma hrært vel saman.

Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og blandað varlega saman við hræruna.
Hellt yfir brauðið og bakað í 200° heitum ofni í ca 15 mín.