


Sannkallaður hátíðarréttur.
2.2 kg lambahryggur
200 g sveskjur, steinlausar
3 stk epli, rauð
1-2 tsk þurrkað rósmarín
1 msk annað krydd að eigin vali t.d. blandað lambakjötskrydd
salt, pipar
olía til að krydda rúlluna að utan og undir fyllinguna
Úrbeinið lambahrygginn og hreinsið burt alla fitu. Smá af olíu borið á sárið og kryddað og sveskjur skornar í tvennt og epli í bitum lagt á miðjuna. Hryggurinn vafinn saman í rúllu og og bundið utan um með seglgarni. Olía borin á og krydd eftir smekk. Rúllan sett í ofnskúffu og steikt í 45 mín við 200° hita.