Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sultugerð Sultur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Chilisulta


Lýsing

Aðeins öðruvísi og mjög góð til að bera fram með ostum og kexi.

Hráefni

í stuttu máli

15 rauðir chilipiparávextir
3 stk rauðar paprikur
500 gr strásykur

½ bolli borðedik
vatn

4 tsk sultuhleypir (Rautt Melatín)

Leiðbeiningar

Chiliávextirnir fræhreinsaðir og skornir smátt. Helmingurinn af fræunum er notaður, hinu fleygt eða þurrkað og notað sem krydd. Paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í litla bita. Fræunum er fleygt.

Allt sett í pott nema hleypirinn og soðið í vatni svo rétt fljóti yfir.

Soðið í 10 mín, gott að nota töfrasprota eða matvinnsluvél til að blanda sultuna saman.

Þá er hleypirinn settur út í hrært vel saman. Soðið áfram ca eina mínútu.

Sett strax í hreinar krukkur. Lokað