


Einkar fljótlegt er að baka þetta brauð.
4 1/2 dl haframjöl
3 dl hveiti
1 dl dökkur púðursykur
1 tsk matarsódi
1 1/2 tsk lyftiduft
1 tsk engiferduft
2 tsk kanill
1 tsk negull
100 g döðlur, skornar í frekar smáa bita (má nota meira ef vill)
4 1/2 dl mjólk
Allt hrært saman í skál.
Bakað við 190° hita í ca 40-50 mínútur.
Best að borða volgt með smjöri eða smurt með rjómaosti t.d. með appelsínubragði.