


Er mjög góð og ekki spillir fyrir að bera þeyttan rjóma fram með.
230 g döðlur
120 g mjúkt smjör
2 egg
3 dl hveiti
5 msk sykur
1 tsk matarsóti
1/2 tsk salt
1 1/2 tsk vanilludropar
1 1/2 tsk lyftiduft
Karamellusósa
200 g smjör
200 g púðursykur
2 dl rjómi
1 tsk vanilludropar
Döðlurnar settar í pott ásamt vatni og látið fljóta vel yfir þær.
Soðnar í 3 mín. og hrært í á meðan. Sykur, smjör og egg þeytt vel saman í hrærivél.
Síðan er öðrum hráefnum nema döðlumaukinu blandað saman við, það er sett síðast út í deigið og blandað vel saman.
Hitið ofninn og bakið t.d. í lausbotna smelluformi eða múffuformum í 30 til 40 mín. við 180° hita.
Karamellusósa
Allt soðið saman í potti í ca 5 mínútur og hrært stöðugt í á meðan eða þangað til sósan þykknar.
Kakan er borin fram með heitri karamellusósunni ásamt vanilluís eða þeyttum rjóma.
Líka má bera fram fersk jarðarber með henni.