


Súkkulaðitertur eru alltaf vel þegnar.
1,3 dl matarolía (t.d. maísolía)
4 egg
2 1/3 dl strásykur
2 1/2 dl hveiti
1,3 dl kakó
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1,3 dl súrmjólk
1 tsk vanillusykur
ögn af kanil
Krem
100 g suðusúkklaði
2 msk rjómi
30 g smjör
Olía, egg og sykur eru þeytt vel eða þangað til blandan verður ljós og le´tt í sér
Þurrefni sigtuð saman og hrærð varlega út í ásamt súrmjólkinni.
Bökuð við 175° hita í 40-50 mín. Stingið prjóni í kökuna og ef hann kemur hreinn upp er kakan bökuð.
Krem
Súkkulaðið brotið í skál og brætt í vatnsbaði við vægan hita. Smjöri og rjóma bætt út í þegar súkkulaðið er byrjað að bráðna.
Gott er að bera þeyttan rjóma eða vanilluís með kökunni.

