


Mjög gömul uppskrift, engu að síður fínar smákökur.
200 g smjör eða smjörlíki
125 g flórsykur
1 eggjahvíta
2 msk vatn
225 g hveiti
1/2 tsk hjartarsalt
100 g suðusúkkulaði, grófhakkað
25 g afhýddar möndlur
Smjörið og flórsykur þeytt vel saman. Eggjahvíta og vatn þeytt saman með gaffli og súkkulaði og smátt söxuðum möndlunum bætt út í. Þessu síðan strax hrært saman við smjörhræruna.
Hveiti ásamt hjartarsalti hrært létt saman við.
Bakað við 225° í ca 10 mínútur.