


Það eru ekki allir sem þola egg. Þessar bollur eru góðar með rjóma og sultu á milli eða með smjöri og osti.
1 bréf þurrger
75 g smjörlíki eða
1/2 dl olía
1,5 dl vatn
1,5 dl mjólk
500 g hveiti
2 msk sykur
1 tsk salt
1 tsk kardimommuduft
mjólk til penslunar
Vökvinn er hitaður í potti og smörlíki eða olíu bætt út í. Látið kólna aðeins eða þangað til þetta er orðið volgt.
Þá er sykri, salti og geri hrært saman við og látið bíða þangað til gerið fer að freyða.
Blöndunni hellt í hrærivélaskál með hnoðara og þurrefnum blandað saman við og hnoðað vel.
Deigið má vera frekar blautt. Sett í skál og rakur klútur breiddur yfir.
Látið hefast í 45-60 mínútur.
Deigið slegið niður og mótaðar úr því bollur. Raðað á bökunarplötu klædda bökunarpappír og nú látið hefast í 15-20 mínútur eða þangað til þær lyfta sér aðeins.
Penslaðar með mjólk og bakaðar í ca 20 mínútur (fer eftir stærð bollanna).