Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Aðferðir eldun
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Eldunartími


Lýsing

Leiðbeinandi ráð varðandi eldunar- og steikingartíma á kjöti.
Hann fer eftir ýmsu, t.d. tegund og aldri slátursdýrsins, laginu á steikinni og hve fituinnihald í vöðvanum er hátt.

Mikilvægt er að nota kjöthitamæli til að fá steikina eins og hún best getur orðið. Þá er kjarnhiti mældur eftir tegund hráefnis.
 

Hráefni

í stuttu máli
Aðferðir
Mikilvægt er að yfirborð steikarinnar nái ætíð 75° hita til að drepa niður bakteríur ef þær eru til staðar. 

Tímalengdin fer eftir tegundum kjöts, er hér miðað við að kjötið sé sett í kaldan ofn sem stilltur er á 200° Tíminn og hitastigið fer meira eftir þykkt steikurinnar en vigt.
Bæði hitastig og tímalengd getur því orðið breytileg.

Nautasteik roastbeef (innanlæri) 1 kg = 1 klst
Kálfabógur með beini 1 kg = 1 ½ - 2 klst
Lambalæri með beini 2,5 kg = 1 ½  - 2 klst
Lambahryggur í heilu 2- 2,5 kg = 1 ½ klst
Svínakambur, pörusteik 2 kg = 1 ½ - 2 klst
Hamborgarhryggur 40-45 mínútur pr kg
Kalkúnn í heilu 5-6 kg = 4 - 4 ½ klst
Kjúklingur, heill 1.4 kg = 1 ½ klst

Hangikjöt er sett í pott með köldu vatni suðan látin koma mjög hægt upp má vera allt að klukkutíma, þá látið sjóða í 20-30 mín. Potturinn tekin af hellinni og kjötið látið kólna í soðinu.
Hangikjötslæri í heilu með beini 2.5 kg = Lærinu pakkað vel inn í álpappír (matta hliðin látin snúa út). Sett í kaldan ofn stilltan á 200° og bakað þannig í 2 klst. Kjötið verður einstaklega mjúkt og safaríkt við þessa aðferð. 

Ef um minni steikur er að ræða t.d. lund, er best að byrja á að „loka“ steikinni með því að brúna hana fyrst á pönnu og láta hana svo klárast í ofni.
Þá er kjöthitamælir alveg ómissandi.
Munið að láta steikina „jafna sig“ á fati í ca 10 mín. áður en hún er borin á borð og skorin.


Kjarnhiti í kjöti eftir tegundum, mældur þegar það er tekið úr ofninum:
 

Leiðbeiningar

Nautakjöt - rautt (rare) = 55-60°
Nautakjöt - meðal steikt (medium) = 60-65°
Nautakjöt -  gegnsteikt (well done) = 65-68°

Hreindýrakjöt - rautt (rare) 55-60°
 
Hreindýrakjöt - meðal (medium) 60-65°
Hreindýrakjöt - gegnsteikt (Well done) = 65-68°

Kálfakjöt – rautt (rare) = 58-60°
Kálfakjöt – meðal (medium) = 60-65°
Kálfakjöt – gegnsteikt (well done) = 65-68° 

Lambakjöt - meðal steikt (medium) = 70°
Lambakjöt - gegnsteikt (well done) = 75°
Hangikjöt - vel soðið = 68°-70°

Svínakjöt - meðal steikt (medium) = 65°
Svínakjöt - gegnsteikt (well done) = 75° 
Kalkúnabrjóst – gegnsteikt = 70° 
Kalkúnn heill - 68-70°