Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Bakstur kökur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Epla- og berjabaka


Lýsing

Ein fljótleg og góð, annað hvort sem eftirréttur eða á kaffiborð.

Hráefni

í stuttu máli
Eftirréttir
Bakstur
Skammtar
8

300 g epli
150 g bláber
1 msk kanill
3 msk hrásykur
170 g mjúkt smjör
200 g hveiti eða speltmjöl (fínt) 
100 g strásykur
75 g valhnetukjarnar (smátt saxaðir)
75 g möndluflögur
6 msk kókosmjöl (gróft)

Leiðbeiningar

Eplin eru þvegin vel og skorin í í báta. Má afhýða ef vill.
Eplum og bláberjum velt varlega  upp úr blöndu af kanil og hrásykri.
Sett á botninn á vel smurðu eldföstu móti.
Smjörið (á að vera frekar kalt) mulið út í hveitið (mjölið) og strásykri, hnetum, möndlum og kókos blandað saman við. Deigið á að vera frekar laust í sér.
Dreift yfir ávextina og bakað við 200° forhituðum ofni í ca 30 mínútur.
Bakan borin fram volg með þeyttum rjóma, vanilluís eða hrærðum sýrðum rjóma, gjarnan blönduðum kanilsykri.

Skipta má út eplum fyrir t.d. rabarbara eða perur og nota hindber í staðinn fyrir bláber.
Einnig er er hægt að baka þetta í 8 litlum eldföstum skálum við sama hitastig í ca 8 mínútur.