Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sultugerð Mauk
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Eplamauk


Lýsing

Mjög einfalt að allri gerð og hentar sem meðlæti með t.d.svínakjöti eða út á ristað brauð eða kex.

Hráefni

í stuttu máli

1,5 kg epli, græn
4 dl vatn
1 kg sultusykur

 

Leiðbeiningar

Eplin afhýdd og kjarnhreinsuð. Skorin í fremur þunna báta. Sett í pott með vatninu og soðin undir loki í 15 mínútur. Sykrinum bætt saman við og soðið í 5 mínútur í viðbót og hrært vel í á meðan, jafnvel með töfrasprota til að fá jafna áferð.
Hellt strax í hreinar krukkur. Lokað strax. Þarf að geyma á köldum stað.

Í þetta mauk má bæta rifinni piparrót eða fersku timjani. Eins gerir 1,5 tsk af kanildufti skemmtilegt bragð.
Kryddað eplamauk er gott sem meðlæti með ýmsum réttum.