


Einstaklega fljótlegur og léttur forréttur.
100 g blaðsalat t.d. ruccola
2 ferskjur
1 stk bóndabrieostur
80 g pekanhnetur
Lögur
2 msk olífuolía
2 msk sítrónusafi
1 msk fljótandi hunang
salt og pipar
Ferskjurnar afhýddar, steinninn fjarlægður og þær skornar í litla báta.
Blaðsalatið lagt fallega á forréttadiska og ferskjubátunum raðað ofan á. Osturinn skorin í litla bita og settur yfir.
Allt sem fer í lögin blandað vel saman og smakkað til með salti og pipar og hellt yfir salatið.
Pekanhnetunum dreift yfir. Borið fram strax.