


Margar útgáfur eru til af fiskfarsi. Þessa uppskrift er upplagt að margfalda og frysta síðan eldaðar bollur og eiga í tilbúnar.
1 kg roðflett ýsuflök
1-2 egg
1 laukur
4 msk hveiti
1 msk kartöflumjöl
2 tsk salt
1/2 tsk hvítur pipar
1/2 tsk Aromat
kardimommuduft á hnífsoddi
1-2 dl mjólk
Einnig má setja 1-2 msk af þurrkuðu kryddi s.s. graslauk og /eða steinsselju í farsið.
Olía til að steikja úr. Vatn.
Bornar fram með góðu hrásalati, soðnum kartöflum remúlaðisósu ef vill.
Fiskur og laukur er hakkaður og sett í hrærivélaskál.
Þurrefnum, eggi og kryddi bætt út í. Hrært vel saman og mjólkinni hellt í smátt og smátt þangað til farsið er mátulega þykkt og þétt.
Mótaðar bollur og steiktar í vel heitri olíu á pönnu. Þegar bollurnar hafa verið steiktar á báðum hliðum er vætt vatni á pönnuna og soðið í nokkrar mínútur með loki yfir.
Meðlæti
Soðnar kartöflur, hrásalat og remúlaðisósa. Eins má búa til brúna sósu úr soðinu.