


Vatn, mysa og teningar settir í pott og suðan látin koma upp. Hitin lækkaður og osturinn brytjaður og settur út í. Hrært í þangað til hann leysist upp.
Allt grænmetið skorið í hæfilega stóra bita og sett út í pottinn. Soðið í ca 15 mín.
Kryddað með fiskisósunni, basilikunni og smakkað til og saltað ef þarf.
Fiskinum er þessu næst bætt út í og soðið við vægan hita í 3 mín.
Rétt áður en súpan er borin fram er rækjunum (þýddum) bætt í.
Borin fram með góðu brauði og setja má 1-2 msk af sýrðum rjóma á hvern disk ásamt ferskri basiliku ef vill.