Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Aðalréttir fiskur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Fiskur með vínberjum


Lýsing

Í þennan rétt er best að nota feitan fisk s.s. lúðu, silung eða lax.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Skammtar
4

800 g fiskur
1 blaðlaukur
nokkrir sveppir
100 g vínber
2 dl matreiðslurjómi
sítrónupipar og salt e. smekk
matarolía

Leiðbeiningar

Fiskurinn er skorin í litla bita og lagður á botnin í smurt eldfast mót.
Blaðlaukur og sveppir skornir í sneiðar og mýktir í olíu á pönnu í smástund. Vínberin eru skorin í tvennt og þau sett út í lauk og sveppablönduna smástund.
Rjómanum hrært saman við og kryddað með sítrónupipar og salti og blöndunni hellt yfir fiskinn.
Bakað í 200° heitum ofni í 10 - 15 mínútur eða þangað til fiskurinn hefur stífnað í gegn.

Borin fram með soðnum hýðishrísgrjónum og fersku grænmeti t.d. agúkrum og tómötum.