Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Meðlæti soðið/steikt
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Franskar kartöflur


Lýsing

Djúpsteiktar (franskar) kartöflur eiga vel við sem meðlæti með ýmiskonar mat og líka góðar einar og sér, sérstaklega þær heimagerðu.

Hráefni

í stuttu máli
Meðlæti
Skammtar
4

6 stórar bökunarkartöflur (annars fer magn eftir lyst)
olía til steikninar t.d. sólblómaolía
eða steikingarfeiti
gróft gott salt
eða kartöflukrydd

Leiðbeiningar

Kartöflurnar eru þvegnar vel og skrældar ef vill, alls ekki nauðsynlegt.
Skornar í stafi, frekar þykka eða eftir smekk.
Settar í pott og soðnar í tæpar 10 mínútur (fer eftir þykkt). Mega ekki mýkjast alveg.
Hellt í gegnum sigti og hvolft á þurrt viskustykki. Þerrað létt yfir. Látnar rjúka vel.
Olían hituð, kjörhitastig er 160°
Stafirnir settir í steikinganet og steiktir fallega brúnir, olían látin dreypa vel af og þeim hvolft á eldhúspappír og salti eða kryddi stráð yfir.
Bornar fram strax.

Ráð 1:
Það gefur stökkar og sérlega góðar kartöflur að steikja þær þangað til þær eru alveg að ná réttum lit. Færa svo uppúr pottinum og kæla alveg. Steikja þær síðan aftur, við þetta verða þær sérlega stökkar og ljúffengar.

Ráð 2:
Kartöflustafina má líka steikja á pönnu í vel heitri feiti eftir að þeir hafa verið soðnir.

Ráð 3:
Einnig má steikja þá í ofni eftir suðu, þá er þeim velt upp úr olíu og steiktir í ofnskúffu (ágætt að hafa bökunarpappír undir) í 20 við 170° hita.
Salti stráð yfir áður en borið er fram.