Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Smáréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Fylltir kartöflubátar


Lýsing

Gott með kjöti eða fiski.

Hráefni

í stuttu máli
Meðlæti
Smáréttir
Skammtar
4
4 bökunarkartöflur
150 gr kotasæla
50 gr Goudaostur 26% eða annar frekar feitur ostur
1 msk laukur fínt saxaður
1 msk þurrkað timjan
svartur pipar
salt

Leiðbeiningar

Kartöflurnar eru soðnar þar til þær eru meyrar, þ.e. þegar auðvelt er að stinga prjóni í gegnum þær.
Kældar og síðan skornar í tvennt í jafna helminga, þeir holaðir að innan með skeið og sett í skál og stappað. Öðru sem á að fara í fyllinguna blandað saman við og hrært vel. Salta aðeins og pipra.
Hræran sett í kartöflubátana og þeim raðað á álpappír á bökunarplötu.
Grillað í ofni í 6-8 mínútur. Gætið vel að hvað tímanum líður svo að þær brenni ekki.
Má líka bera fram með grænmetisréttum og eða salati.