Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Jólauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Gæsabringa


Lýsing

Hátíðarréttur eins og þeir gerast bestir.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Jólauppskriftir
Skammtar
4
gæsabringa 6-800 gr (beinlaus og snyrt)
gulur laukur 80 gr (smátt saxaður)
grænn pipar 1-2 tsk (mulinn)
smjör 50 gr
0,5 dl
koníak/brandy
0,5 dl
þurrt rauðvín
1,5 dl
rjómi
2-2,5 dl
dökkur kjötkraftur (Oscar) 
½-1 tsk
salt og pipar eða eftir smekk
1 tsk Dijon sinnep
maísena sósujafnari eftir þörfum 

Leiðbeiningar

Gæsabringan er brúnuð í smjöri á vel heitri pönnu, krydduð með salti og pipar og steikt þar til hún er ca. miðlungssteikt (medium).
Tekin af pönnunni og
laukurinn settur á pönnuna og brúnaður gullinbrúnn.
Þá er piparnum bætt út í, látið krauma í smá stund.
 Koníakunu og rauðvíninu bætt á pönnuna og það látið sjóða niður til helminga með lauknum og piparnum. 
Nú er rjómanum bætt út í ásamt kjötkrafti og Dijon sinnepi. Sósan er látin sjóða rólega í ca. 1 mínútu.
Sósan þykkt með maísena sósujafnara og smökkuð til með salti og pipar og e.t.v. kjötkrafti ef svo þykir þurfa.
 
Að síðustu er gæsabringurnar settar út í og þær látnar hitna í sósunni í smá stund áður en þær eru bornar fram. Ekki má sjóða bringurnar í sósunni. 
Gott er að skera bringurnar í þunnar sneiðar (transera) áður en þær eru bornar fram.
Þá er smávegis af sósunni hellt yfir bringurnar og restin af sósunni borin fram í sósukönnu.
Meðlæti með þessum rétti er t.d. ristaðar kartöflur og ferskt grænmeti.


Uppskrift: Kristján Rafn Heiðarsson, matreiðslumeistari. Hrunaréttir, 2008.