Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Súpur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Graskerssúpa


Lýsing

Öðruvísi súpa.

Hráefni

í stuttu máli
Súpur
Skammtar
4
1 laukur, smátt saxaður
1 hvítlauksgeiri
600 gr graskerskjöt í teningum
1 msk smjör eða olía
4 dl kjúklingasoð
1 tsk Maldon salt
p
ipar
smávegis rifin múskatrót
1 msk ferkst tímjan smátt saxað
2 dl léttmjólk
 

Leiðbeiningar

Feitin hituð í potti og grasker, laukur, hvítlaukur mýkt í henni smá stund.
Soði, salti, pipar og múskatrót  bætt í og látið sjóða í 20- 30 mín. eða þangað til graskerið er mjúkt í gegn. Mjólkin sett saman við og hrært vel saman með þeytara eða töfrasprota.
Suðan látin koma upp aftur. Smátt söxuðu tímjan stráð yfir, ef vill.
 

Meðlæti 
Gott brauð. 

Grasker
Best er að skera graskerið til helminga, leggja helmingana á skurðarbretti með sárið niður, þannig er auðvelt að skræla það. Kjarninn fjarlægður ásamt svampkennda hlutanum utan um fræin og kjötið skorið í litla teninga.
Grasker sem er 1 kg gefur 600 gr af graskerskjöti.