Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Smáréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Gratinerað blómkál


Lýsing

Sem meðlæti með kjöti eða fiski. Gengur einnig vel sem sérréttur.

Hráefni

í stuttu máli
Meðlæti
Grænmetisréttir
Smáréttir

1 vænt blómkálshöfuð

Bechamelsósa
3 msk smjörlíki
3 msk hveiti
3 ½ dl mjólk (gott að hita hana aðeins)
ca 1 dl blómkálssoð
salt
hvítur pipar
ögn af rifinni múskatrót eða dufti
smá hvítlaukssalt (ef vill)
50 g rifinn ostur (frekar feitur)
1 msk parmasanostur (ef vill) 

Ostur til að strá yfir í lokin. 

Leiðbeiningar

Blómkálið er skolað vel úr köldu vatni. Skorin þunn sneið neðan af stilkinum. Soðið í léttsöltuðu vatni í ca 10-15 mínútur, eða þangað til kálið er meyrt.
Gæta þess að ofsjóða ekki. Tekið upp með spaða og sett í eldfast mót með háum kanti.
Ath. að geyma ca 1 dl af soðinu í sósuna. 

Sósa
Búin til uppbökuð sósa þ.e. smjörið brætt og hveitinu jafnað í. Þynnt smám saman með mjólk og  soði. Kryddað eftir smekk og látið malla í 7-10mín. Ostinum bætt út í og látin bráðna.
Sósunni er síðan hellt yfir blómkálið og osti stráð yfir, t.d. gratin osti.
Bakað í ofni við 220° hita þar til osturinn tekur á sig lit. 

Uppskrift: Doris Briem.