Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Meðlæti soðið/steikt
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Grænmetisstappa


Lýsing

Er góð sem meðlæti með fiski eða kjöti.

Hráefni

í stuttu máli
Meðlæti
Skammtar
4

500 gr kartöflur
4 gulrætur
1 blaðlaukur
25 gr smjör
salt og pipar
1-2 dl kartöflusoð

Leiðbeiningar

Kartöflurnar eru afhýddar og skornar í bita ef þær eru af stærri gerðinni. Soðnar í vatni í ca 15 mínútur eða þangað til þær eru meyrar.
Laukur og gulrætur hreinsað og skorið í sneiðar og mýkt í smjöri á pönnu þangað til það mjúkt.
Gæta þess að hafa mátulegan hita svo að grænmetið brúnist ekki eða brenni.
Vatninu hellt af kartöflunum og takið frá ca 2 dl af því.
Kartöflurnar stappaðar og kartöfluvatninu bætt í og hrært þangað til þykktin er mátuleg.
Þá er lauk og gulrótum bætt saman við og saltað og piprað að smekk.

Ráð
Má setja fínt skorin graslauk yfir eða rifna piparrót.