


200 gr grænkál
2 epli, rauð
1 blaðlaukur, fremur smár
100 gr rauða linsubaunir ef vill
Lögur
100 gr grísk jógúrt
1 msk eplaedik
1-2 tsk hrásykur
Linsurnar soðnar og kældar ef þær eru notaðar í salatið.
Epli, kál og blaðlaukur skorið í bita og blandað saman í skál.
Jógúrt, edik og sykur hrært vel saman og dreypt yfir slatið.
Ef linsurnar eru notaðar er þeim blandað saman við og þá er hér komin létt máltíð fyrir tvo með góðu brauði.