Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Grautar
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Hafragrautur Nikulásar


Lýsing

Tilbrigði við venjulegan hafragraut.

Hráefni

í stuttu máli
Grautar
Skammtar
2

1 ½ dl haframjöl, gróft (ekki verra ef það er lífrænt ræktað)
5 dl vatn
1 msk olívuolía
salt
Ef vill má setja 1 msk af hörfræi og 1-2 msk af rúsínum út í með mjölinu eða aðra þurrkaða ávexti.

Leiðbeiningar

Setjið vatn og olíu í pott og hleypið upp suðu.

Mjölið hrært út í og hitinn lækkaður þannig að rétt malli í grautnum.

Látið malla þangað til hann fer að þykkna. Þá er saltað eftir smekk.

Ef notaðir eru þurrkaðir ávextir eru þeir settir strax á efir mjölinu.

Borin fram með mjólk eða AB-mjólk og smávegis af kanildufti sáldrað yfir.