Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Ódýrir réttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Hakkréttur


Lýsing

Það má elda fjölbreytta og góða rétti úr nautahakki og upplagt að nýta sér tilboð á því þegar það býðst.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Ódýrir réttir
Fjldi
4

400 g nautakjötshakk eða
1 stór laukur
1 tsk salt
½ tsk paprikuduft
½ tsk Season All
svartur pipar e. smekk

Deig
4 egg
1 lítil dós jógúrt, hrein
1 dl mjólk
12 msk hveiti
2 tsk lyftiduft
5 msk olía

Leiðbeiningar

Hakkið brúnað í olíu á pönnu ásamt lauknum. Kryddað eftir smekk.
Eggin eru eru þeytt vel saman ásamt jógúrt, mjólk og olíu. Hveiti og lyftidufti hrært saman þangað til blandan verður jöfn.
Að síðustu er svo hakkinu bætt út í og hrært vel.
Blöndunni er hellt í litla ofnskúffu eða eldfast mót (30x25 cm).
Rétturinn settur í kaldan ofninn og hann stilltur á 200° hita. Bakað í ca 30 mín. eða þar til rétturinn er gullinbrúnn á að líta.
Þá er slökkt á ofninum og látið bíða í 10 með lokaða ofnhurðina.
Borið fram með grænu salati, tómötum, olívum, fetaosti í olíu.