


Mörgum finnst hálfmánar ómissandi á jólum.
250 g hveiti
100 g smjör
100 g sykur
1 egg
1/4 tsk kanill
1/4 tsk kardimommudropar
tæpl. 3/4 tsk lyftiduft
1 msk mjólk
1/4 hjartasalt
Sveskjusulta
Öllu blandað saman og hnoðað. Deigið síðan flatt út með kökukefli.
Skorið út með glasi, sett smávegis af sultu (tæpl. ein teskeið) á hverja köku, brotið saman og sárinu lokað með því að þrýsta gaffli eftir því.
Bakað við 180° hita í 8-10 mín.