Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Pottréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Hátíðarpottréttur


Lýsing

Einfaldur og mjög góður einn og sér eða sem heitur réttur á hlaðborði.

Hráefni

í stuttu máli
Pottréttir
Fjldi
4-5

600 g nauta- eða lambakjöt
1 stórlaukur
eða nokkrir perlulaukar
2 hvitlauksgeirar ef vill
4 gulrætur
3 sellerístönglar
1-2 tsk salt
1/2 tsk pipar
1/2 tsk karrý
1 græn parika
1 lítil dós tómatmauk (puré)
2 dl vatn
1 dl rauðvín
1 súputeningur (grænmetis)
2 1/2 dl rjómi
olía til að steikja úr

Leiðbeiningar

Kjötið er brúnað í olíunni í potti. Brytjað grænmeti og laukur annað en paprika, sett út í ásamt kryddi, vatni, rauðvíni og teningi.

Látið malla í ca 30 mín. Þá er brytjaðri paprikunni bætt út í ásamt rjómanum (má nota mjólk að hluta). Soðið við vægan hita í 10 mín til viðbótar.

Með þessu eru borin fram hrísgrjón, gott salat t.d. úr spínatblöðum og fetaosti í kryddolíu.
Gott heimabakað brauð er líka tilvalið.