Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Jólauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Hnetubuff


Lýsing

Létt og bragðgott og borið fram með trönuberjasultu og rauðkáli er þetta hátíðarmatur.

Hráefni

í stuttu máli
Grænmetisréttir
Jólauppskriftir
Skammtar
2-3
1/2 laukur
1 bolli soðin bygggrjón
1 rauðrófa, meðalstór
50 gr möndlur
50 gr valnetur eða pekanhnetur
2 msk sesamfræ
3 msk speltmjöl
1-2 msk olía
salt og pipar
nokkrir dropar tamarisósa

1/2 grænmetisteningur
brauðmylsna

Leiðbeiningar

Byggið soðið með grænmetisteningi í ca 45 mínútur.
Laukurinn saxaður smátt og mýktur á pönnu.
Rauðrófan söxuð smátt og blandað saman við hana bygggrjónum, hnetum (söxuðum) og fræjum ásamt speltimjöli, olíu og kryddi.
Mótuð buff sem velt er upp úr brauðmylsnu, látin bíða í ca 1 klst áður en þau eru steikt á pönnu í góðri olíu.

Borin fram með stöppu úr sætum kartöflum, góðri kryddolíu, rauðkáli og trönuberjasultu.