Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Grautar
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Hrísgrjónagrautur


Lýsing

Best er að nota sérstök grautargrjón eða gulan River rice í grauta.

Hráefni

í stuttu máli
Grautar
Skammtar
3-4
125 gr hrísgrjón (1 1/2 dl)
2 dl vatn
ca 8 dl nýmjólk
1/2 tsk salt
1-2 tsk sykur ef vill
smjörklípa ef vill

Leiðbeiningar

Suðan látin koma upp á grjónum og vatni. Mjólkinni bætt út í tvennu lagi.
Gætið að því að hafa mjög vægan hita undir pottinum, annars vill allt brenna við.

Látið malla í a.mk. 1 klst. þannig að grauturinn seyðist og grjónin verði mjúk.
Saltað og sykrað eftir smekk. Að síðustu er smá smjörklípu bætt út í ef vill.

Borin fram með berjasaft, rjóma eða maukuðum ávöxtum. Kanil dreift yfir.