


500 gr hrefnukjöt
2 bananar
½ tsk salt
pipar
½ tsk rósmarín
1 ½ dl rjómi
½ -1 tsk karrý (eftir hvað það er sterkt)
smjör eða matarolía til steikingar
Skerið kjötið í 2ja sm þykkar sneiðar og berjið aðeins með handarjaðrinum.
Steikið á pönnu þar til þær fá góðan lit.
Raðið sneiðunum í eldfastmót og kryddið með salti og rósmarín (pipar ef vill).
Afhýðið bananana, kljúfið og skerið hverja lengju í 4 bita, raðið þeim ofan á kjötið í mótinu, ávala hliðin á að snúa upp.
Setjið karrýið út í rjómann og hálfþeytið hann og hellið honum síðan yfir kjötið.
Bakið í vel heitum ofni (ca 200°) í 20 til 25 mín.
Borið fram með hrísgrjónum eða kartöflum, grænmetissalati og sýrðum rauðrófum eða sýrðum gúrkum.