Jarðarberja- og kiwimauk
Lýsing
Þetta mauk er aðeins öðruvísi og passar mjög vel með ostum.
Hráefni
1/2 kr jarðarber
150 gr kiwi
300 gr sultusykur
rifinn börkur af 1/2 sítrónu
1 tsk mulinn græn piparkorn
Leiðbeiningar
Berin hreinsuð og kiwiið afhýtt og skorið í teninga. Öllu blandað vel saman í pott og látið sjóða í ca 5 mínútur.
Froða fleytt ofan af og sett strax í heitar og hreinar krukkur.
Lokað vel og geymt í kæli.