


Mjög ferskur og bragðgóður.
Ath það má ekki nota ferskan ananas því hann þolir ekki að frjósa.
200 g ananaskurl (úr dós)
120 g ananassafi
1 ½ msk flórsykur
120 g sýrður rjómi (10%) eða grísk jógúrt
100 g léttjógúrt með kiwi og perum
1 msk sítrónu- eða appelsínusafi
Sigtið ananasinn og hellið safanum í skál. Geymið kurlið í kæliskáp. Hrærið saman sykri, jógúrt, ananassafanum og sýrðum rjóma og smakkið til með sítrónu eða appelsínu safa.
Blöndunni hellt í í ílát og fryst í ca 4 klst. Þá er ísinn tekin aftur úr frysti og ananaskurlinu hrært vel saman við.
Fryst aftur í ca 4 klst.