Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Brauðréttir kaldir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kaldur brauðréttur


Meðaltals einkunn vote imagevote imagevote imagevote image / 4 1 Fjldi atkvða

Lýsing

Þessi réttur er bestur ef hann er gerður daginn áður en á að borða hann.

Hráefni

í stuttu máli
Brauðréttir

ca 10 sneiðar franskbrauð í sneiðum án skorpu
½ dós ananas í bitum (safinn sigtaður frá og notaður í sósuna).

Sósa:
1 dós sýrður rjómi (10%)
jafnmikið magn majónes
safinn af anansbitunum

Þetta er hrært vel saman  og sósan látin „brjóta sig“ í 2-3 klst í kæliskáp.

1 bolli skinka skorin í smátt
1 bolli rækjur, ef vill annars meira af skinku
ananasbitarnir

Sama magni af skinkubitum og sama af rækjum ef þær eru notaðar ásamt:

½ Gullostur skorin í litla bita (má líka nota Dalabrie eða Höfðingja)
½ piparosuri í litlum bitum
paprika, t.d. gul, rauð og græn, skorin í bita
vínber, steinlaus blá, skorin til helminga

Leiðbeiningar

Brauðsneiðunum raðað á botn á frekar stóru og djúpu fati.
Helmingnum af sósunni smurt yfir brauðið.

Skinka, rækjum og ananasbitum dreift yfir.
Yfir þetta fer afgangurinn af sósunni og þar ofan á ostur og papirika í bitum og að síðustu er vínberjunum dreift yfir.

Mín einkunn

Athugasemd doramatthias , Föstudagur, 20. nóvember 2009 vote imagevote imagevote imagevote image
Einföld og góð uppskrift fyrir hvaða boð sem er.