Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Páskauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kalkúnn


Lýsing

Aðferðin sem hér er líst gefur einstaklega mjúkan og safaríkan kalkúna.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Jólauppskriftir
Páskauppskriftir
Skammtar
8
5-6 kílóa fugl

bali eða annað stórt ílát
kalt vatn svo að fljóti vel yfir fuglinn

fesrkur fugl þarf að liggja í leginum í 4 klst.
frosinn fugl í 10-12 klst.

Út í vatnið fer
2-3 sítrónur, safi og þær síðan skornar í bita
2-3 msk Maldon salt

Lögur til að pensla fuglinn með fyrir og á meðan á steikingu stendur
2-3 dl af góð matarolía (ekki ólífuolía) má líka nota smjör
krydd að smekk t.d. salvía, poultry seasoning og timjan
hvítlaukur ef vill
1 tsk salt
pipar
2 msk malsamicoedik

Fylling (5-6 kg fugl)
6 bollar ristaðir franksbrauðteningar (7-8 brauðsneiðar)
1 ½ tsk salt
½  bolli saxaður laukur
½  tsk salvía
½  tsk poultry seasoning
¼  tsk hvítur pipar
½  bolli mjúkt smjör
½  bolli sjóðandi vatn

Leiðbeiningar

Lögur til að pensla með
Hitað hægt og út í þetta fer líka salt og pipar og góð sletta af balsamicoediki. Passa vel að brenna ekki lögin.

Fuglinn tekin úr „baðinu“, þerraður vel og síðan penslaður með leginum 2-3 sinnum í ca. 2 klst. áður en hann fer í ofninn.
Gott er að troða að lokum smjörklípum undir skinnið þar sem því verður við komið. Þá er fyllingu troðið í fuglinn og lokað fyrir t.d. með kjötnál eða saumað fyrir með seglgarni. Kalkúnninn er þessu næst settur í á bökunargrind í 150° heitan ofn í ca 40 mín. pr. kíló. Ofnskúffan er höfð undir. Og í hana fer vatn, laukur, gulrótarbitar og innmaturinn. Fuglinn ausinn með soðinu nokkrum sinnum meðan á steikingu stendur.
Ath. getur þurft að bæta vatni í skúffuna.
Síðustu 15 mín. eða svo er hitinn hækkaður í 200° Ágætt að vefja álpappír um leggina svo þeir þorni ekki.
Soðið er notað í sósuna.
Best er að láta fuglinn standa í 15 mín. á fati áður en hann er skorinn. Þessi aðferð gefur einstaklega meyran og safaríkan kalkún.

Fylling

Laukurinn er mýktur í smjörinu á pönnu. Brauðsneiðar ristaðar og skornar í teninga.
Brauðteningum + kryddi bætt út á pönnuna og hrært vel saman og síðast er vatninu hellt út í. Passa að hafa lágan hita. Það verður eins konar mauk/deig úr þessu, sem troðið er í fuglinn og lokað með kjötnál eða saumað fyrir með seglgarni.

Appelsínukartöflur og Waldorfsalat eiga vel við með kalkúnakjöti. Sjá uppskriftir í Meðlæti.

Uppskrift og aðferð: Karl Guðsteinsson.