Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Smáréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Karrýfiskur


Lýsing

Þessi réttur smakkast frábærlega vel.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Smáréttir
Skammtar
4

600 g ýsuflak

2 dl hrísgrjón t.d. jasmín
4 dl vatn
salt

Sósa
4 msk majónes
2 dl súrmjólk eða grísk jógúrt
2 tsk gott karrí
örl. af Aromati

1 tsk Maldon-salt ofan á fiskinn.

100 g sveppir
4 msk rifinn ostur

Leiðbeiningar

Hrísgrjónin eru soðin þangað til þau er rétt mátuleg undir tönn.
Það sem fer í sósuna er hrært saman í skál.
Soðin hrísgrjónin eru sett í smurt eldfast fat, þjappað aðeins og þessu næst er fiskinum, sem skorin hefur verið í bita, raðað yfir og Maldon-saltinu stráð ofan á. Sneiddum sveppum dreift yfir.
Og sósunni þessu næst hellt yfir og jafnað út.
Bakað í ofni við 200° hita í ca 30 mín. og þá er rifnum ostinum dreift yfir og bakað í 10 mín. í viðbót eða þangað til osturinn hefur fengið á sig gulbrúnan lit.

Gera má réttinn enn sparilegri með því að setja svolítið af rækjum á móti fiskinum.